Helstu fréttir
Blanda II Skemmtilegur og áhugaverður kostur
Okkur Hjá Lax-á langar að minna á þá breytingu sem var gerð á svæði 2 í Blöndu í sumar en nú seljum við sér á svæði 2 og er hægt að kaupa holl og staka daga frá morgni til kvölds. Verðin eru á bilinu 7.800 kr -28.800 kr.
Það er enginn húsakylda frá 20 júní -20 júlí en eftir 20 júlí kostar fæði og gisting 8.800 kr pr dag, innifalið svefnpokagisting, morgunmatur og kvöldmatur.
Svæði 2 í Blöndu er um 20 km langt og spannar nánast allan langadalinn. Frægustu veiðistaðirnir eru Svarthylur sem er svolítið fyrir neðan ármót Svartá og Blöndu, Vaðsrengur, rétt fyrir neðan bát Auðólfstaðaós, Stjúgsstaðabreiða og Kláfur. Í bestu árum hefur svæði 2 gefið allt að 500 löxum í bestu árum, einnig er töluvert af silungi á svæðinu.

Þetta er áhugaverður og mjög skemmtilegur kostur og ekki eitthvað sem maður ætti að láta fara framhjá sér.
Frekari upplýsingar gefur stefan@lax-a.is eða hægt er að nálgast verð og kaupa á netinu á www.agn.is
Góða Veiði!
