Helstu fréttir
Örfáar stangir eftir í Víðidalnum
Heldur er farið að þrengjast um lausar stangir í hina rómuðu stórlaxaá Víðidalsá. Nú er svo komið að einungis eru lausar stangir frá 27 til 29 júní og svo frá 29 júní til 2 júlí.
Þess má geta að vikuna 24. júní til 1. júlí veiddust 45 laxar í fyrra og vikuna 1. júlí til 7. júlí voru þeir tæplega 100.

Þessi var tekinn fyrripart júlí
Allt voru þetta vænir laxar og sumir hverjir rígvænir.
Áhugasamir hafi samband við spall@lax-a.is
