Helstu fréttir
Vika í Blöndu 2 án veiðihúss
Vegna sérstakra aðstæðna fylgir ekki veiðihús með veiðileyfum á svæði 2 í Blöndu vikuna 27. júní til 4. júlí.
Verð á veiðileyfum er 11.800 á þessum tíma og vekjum við athygli á því að stórstreymt er 27. júní og því er von á að smálaxinn verði farinn að ganga af nokkrum krafti – ásamt því að stórlaxinn verður enn að hellast inn.
Einn háfaður fyrir neðan Svarthyl
Þetta eru því mjög áhugaverðir dagar á mjög hagstæðu verði.
Bóka má með því að senda póst á spall@lax-a.is á www.agn.is eða með því að hringja í síma 531 6100
