Helstu fréttir

helgi_gudbr_3

Silungs- og vorveiði í Tungufljóti

10.3.2010

Þann 1. apríl opna allmörg veiðisvæði hjá Lax-á eins og menn vita. Eitt þeirra er silungasvæðið í Tungufljóti. Veiðisvæðið sjálft er þó víðfeðmara en bara Tungufljótið, innan þessa svæðiðs eru einnig Laugaá, Beiná, Stekkjartúnsá og Almenningsá svo eitthvað sé nefnt. Svæðið nær frá skilti ofan við ármót Einholtslækjar og Tungufljóts og eins langt og fljótið og hliðarár þess ná.

tflj_sil 6

Tungufljót

Veiðisvæðið er því ekki einungis gríðarstórt, heldur einnig ákaflega fjölbreítt. Almenningsá rennur í Tungufljót skammt neðan Geysis og hafa þau ármót verið gjöful undanfarin ár. Almenningsá er sjálf ágæt veiðiá og er af þokkalegri stærð, í hana renna síðan Laugá, Beiná og Stekkjartúnsá. Þessar minni ár eru mjög ólíkar Tungufljótinu og Almenningsánni, í þeim gildir að nota nettari græjur, veiða uppfyrir sig og fara varlega.

Tflj_sil 5

Stekkjartúnsá ofan þjóðvegar

 

Laugá er lítil og tær á sem rennur í Almenningsá aðeins fyrir neðan Geysi. Þar gildir að nota þurrflugur eða upstream – aðalatriðið er þó að fara varlega og styggja ekki fiskinn.

 

Tflj_sil 4

Laugá - lítil og nett

Beiná er lítil og nett á sem geymir furðulega mikið af vænum urriða, hið sama gildir þarna og í Laugánni, að fara varlega að ánni. Fari menn varlega og beri sig rétt að, geta menn átt von á góðum afla.

Ekki er komin mikil veiðireynsla á Stekkjartúnsána en líklegt er að henni svipi til Laugár og Beinár.

Einnig er vert að benda á að í gamla farvegi Tungufljóts, sem liggur samsíða Tungufljóti á 2ja kílómetra kafla fyrir neðan Biskupstungnabraut, renna nú Kjóastaðalækur og Brúarlækur og mynda ágætt og veiðilegt vatnsfall.

Í gamla farveginum, sem heitir víst Farvegur á kortum, hefur verið útbúin sleppitjörn og var sleppt í hana sumarið 2009. Það má því búast við að laxgengd aukist á silungasvæðinu í sumar.

 

Þeir veiðimenn sem við höfum heyrt í tjá okkur að mesta veiðina hafi þeir gert við ármót Almenningsár og Tungufljóts, og bæði upp og niður með Tungufljótinu við ármótin. Einnig veiðist vel við upp frá ármótunum í Almenningsá.

Einnig hafa menn gert fína veiði þar sem minni árnar renna í Almenningsána og í litlu ánum sjálfum.

Eins og sjá má er þetta veiðisvæði að mörgu leyti óskrifað blað, þó er vitað til þess að menn hafi gert góða veiði og veitt fallega fiska eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

tflj_sil 1

Sjá má Geysis svæðið í baksýn

tflj_sil 2 

Laglegur urriði úr Tungufljótinu sjálfu

 helgi_gudbr_3

Laglegur 8 - 10 punda urriði

Stærsti urriði sem við heyrðum um í fyrra var um 13 pund og var tekinn í Tungufljótinu sjálfu. Veiðimenn sem svæðið stunda segja okkur að lykillinn að velgengni sé að fara sem víðast og prófa sem mest.

 

Svæðið opnar sem fyrr segir 1. apríl og er veiðikort í smíðum og verður vonandi tilbúið sem fyrst. Upplýsingar um laus leyfi og verð má finna á www.agn.is og er rétt að benda á að fyrsta vikan er á tilboði - 1.450 kr. dagurinn.

 

Stefán Páll Ágústsson spall@lax-a.is

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar