Helstu fréttir
Krossá í Bitrufirði
Okkur hjá lax-á er sönn ánægja að segja frá því að við vorum að gera samning um Krossá í Bitrufirði næstu árin, en í sumar verður okkar fyrsta ár. Krossá er 2 stanga laxveiðiá sem gefur að jafnaði 80-100 laxa á ári hverju og fylgir góður bústaður með 2 svefnherbergjum og svefnlofti. Bústaðurinn er rúmgóður svo þetta er alveg afbragð fyrir fjölskyldur og minni hópa. Gasgrill verður á staðnum.
Fyrir þá sem vilja skoða frekar kíkið á þessa síðu. http://www.lax-a.is/islenska/island/stangveidi/laxveidi-an-thjonustu/krossa/ Afsakið myndirnar en gæðin eru ekki upp á marga fiska. vonandi náum við að breyta því fljótt.
Frekari upplýsingar um laus leyfi gefur stefan@lax-a.is
Krossá mun smella næstu daga inná www.agn.is
