Helstu fréttir
Bestu veiðistaðirnir eru í Ytri Rangá
Við vorum að púsla saman veiðitölum úr Ytri Rangá síðastliðið sumar og í efstu 10 sætunum eru kunnugleg nöfn, þó ekki endilega í þeirri röð sem menn eru vanir að sjá:
| Veiðist. no. | Heiti | Svæði | Fjöldi laxa |
| 22 | Ægissíðufoss | 4 | 1149 |
| 6 | Djúpós | 2 | 972 |
| 30 | Rangárflúðir | 6 | 858 |
| 21 | Klöppin | 4 | 780 |
| 1 | Borg | 1 | 699 |
| 41 | Stallmýrarfljót | 8 | 688 |
| 18 | Neðrahorn | 4 | 615 |
| 34 | Tjarnarbreiða | 6 | 534 |
| 36 | Hellisey | 7 | 533 |
| 16 | Gunnugilsbreiða | 3 | 529 |
Vissulega er veitt lengur í Ytri Rangá en flestum öðrum ám, eins og gjarnt er með hafbeitarár. Veitt er í 120 daga og eru tvær stangir á hverju veiðisvæði svo allt komi nú fram.
Það vekur athygli okkar að á svæði 4 eru þrír af tíu aflahæstu veiðistöðunum, þar sem þarna er um 2ja stanga svæði að ræða þá hefur veiðiálag ekki verið 100 % á öllum þessum stöðum. Hér að neðan má sjá töflu yfir fjölda veiddra laxa á hverju svæði fyrir sig.
| Svæði | Fjöldi laxa: |
| 4 | 2908 |
| 1 | 1294 |
| 6 | 1231 |
| 7 | 1199 |
| 2 | 997 |
| 3 | 927 |
| 8 | 921 |
| 5 | 317 |
| 10 | 262 |
| 9 | 58 |
Ef við skoðum veiði á hverju svæði fyrir sig þá sjáum við að sjö svæði af tíu eru með yfir 900 laxa – 900 laxar á tvær stangir! Þessar tölur eru auðvitað með ólíkindum.
Svæði 5, svæði 10 og svæði 9 eru ekki sérlega beysin í samanburði við hin sjö, en við skulum þó hafa í huga að 250 – 320 laxar þætti býsna góð veiði í hvaða tveggja stanga á sem er. Það er í raun einungis svæði 9 sem veldur vonbrigðum, en menn eru þó aldrei nema hálfa vakt á því svæði í mesta lagi.
Upplýsingar um lausar stangir og verð má nálgast hjá undirrituðum á netfanginu spall@lax-a.is eða á skrifstofunni í síma 531 6100
