Helstu fréttir
Einstök náttúrufegurð og kyrrð - Fjarri skarkala höfuðborgarinnar
Sumarið í Langadalsá var afar sérkennilegt, erfiðleikar framan af vegna þurrka og vatnsleysis, en eigi að síður gekk laxinn upp og dreifði sér. Svo þegar líða tók á sumar og væta gerði loks vart við sig sprakk allt og menn höfðu vart undan að setja í fiska. Sum hollin voru með ævintýralega veiði. Langadadalsá er góður kostur til að þjappa saman fjölskyldu- og/eða vinahópum. Sú nýbreytni er að eingöngu er veitt á flugu allt tímabilið.
Hér má sjá feðgana með vænan fisk, það mætti ætla að þeir hefðu sett í slíkan fisk áður..vel gert herramenn.
Áhugasamir um veiðileyfi í Langadalsá geta haft samband hingað á skrifstofu Lax-á..
Sími á skrifstofu er 531-6100 opið alla daga frá 9-17
kv
Axeló
