Helstu fréttir
Fréttir af Blöndu
Staðan á Blöndulóni er nokkuð góð miðað við árstíma, Blanda er komin af yfirfalli og vatnabúskapur með besta móti. Stefnt er að því að keyra Blönduvirkjum á hámarksafköstum í vetur sem eru góðar fréttir fyrir okkur veiðimenn þar sem það leiðir af sér lægri vatnsstöðu í lóninu næsta sumar.
Annars er það helst að frétta af Blöndu að svæði 1 og 2 verða aðskilin allt tímabilið næsta sumar, en ekki seld saman í júlí eins og tíðkast hefur hingað til. Áhugasömum veiðimönnum er bent á að senda póst á spall@lax-a.is eða bara hringja í okkur hér á skrifstofunni.
