Helstu fréttir
Tröllin í Yokanga - lausar stangir
Við vorum að fá bréf frá einum sem var í Lower Yokanga síðastliði vor, ásamt nokkrum flottum myndum úr þeirri ferð og viljum við deila þessu með ykkur. Minnum á að við eigum nokkrar stangir í Lower Yokanga á sama tíma á næsta ári á góðu verði, og geta áhugasamir fengið frekari upplýsingar á skrifstofu.
En hér er bréfið sjálft:
Neðri Yokanga vikan 5-12 júní 2009, ég var þarna þessa viku, veitt var á níu stangir og fengust yfir 50 laxar af stærðinni frá 18-34 pund . Þetta er magnaðasta laxveiði sem völ er á í heiminum trúi ég, að vísu ekki fyrirhafnarlaust, menn verða að leggja á sig mikla vinnu til að fá eitthvað og ef menn eru tilbúnir í það eru verðlaunin mögnuð.Hvað er meira spennandi í laxveiði en möguleikinn á því að setja í laxa yfir 40 pund. Einn í hópnum setti í þannig fisk og barðist við hann vel á annan klukkutíma en að lokum hafði fiskurinn betur,veiðimaðurinn gleymir þessu væntanlega aldrei.Ég læt fylgja nokkrar myndir af fiskum af stærðinni 22-34 pund, hafi ég möguleika á því að fara þarna aftur til veiða mun ég gera það, ekki spurning .
Kveða Hallur Sigurðsson.
Við leyfum svo myndunum að tala sínu máli.

Hver vill ekki eiga við svona dreka?

Þessi er ekki mikið síðri

Leitun að fallegri fisk en þessum

Þessi kemst þó nálægt því

Kemst varla fyrir í háfnum!
