Helstu fréttir
Langar þig að skjóta rádýrstarf (roebuck) í Skotlandi?
Lax-á býður upp á skotveiðiferðir til Deeside í Skotlandi þar sem menn elta uppi og skjóta rádýr.

Um er að ræða ferð þar sem farið er á veiðar fimm morgna og fjögur kvöld. Gert er ráð fyrir því að felldir verði 5 tarfar á hverja byssu í ferðinni, þar af þrír verðlaunatarfar.

Á daginn, utan veiðitíma, er hægt að stytta sér stundir í golfi, skoðunarferðum eða jafnvel við laxveiðar í ánni Dee. Hægt er að velja um ýmiskonar gistimöguleika á svæðinu, allt frá “self-service” gistingu til 5 stjörnu hótela og erum við veiðimönnum innan handar með það, einnig er möguleiki á að leigja riffla á staðnum.
Áhugasamir hafi samband við Axel axelo@lax-a.is
