Helstu fréttir
Blanda svæði 4 kominn í sölu á www.agn.is - framboðið minnkar á hverjum degi
BLANDA SVÆÐI IV
Hið kyngimagnaða veiðisvæði í Blöndu, svæði 4 er nú komið í sölu inn á söluvef okkar hér hjá lax-á, www.agn.is . Þar má finna lausa daga sumarið 2010 en eins og undanfarin ár fara bestu tímarnir þar afar snemma. Veiðin í ár var líkt og almennt í Blöndu fyrnagóð og ekki er því við öðru að búast næsta sumar. Kíktu á www.agn.is og tryggðu þér leyfi í tíma..
kveðja
Axeló
BLANDA SVÆÐI IV

Blanda Sv4 er eitt af geymdu leyndarmálum laxveiðanna. Lítil bergvatnssá sem á í raun ekkert sameiginlegt með sjálfri Blöndu nema að renna í gamla árfarveigi hennar, þangað til Blanda fer á yfirfall þá rennur hluti Blöndu í gamla árfarveiginum. Blanda sv 4 geymir Glæsilega veiðistaði í bæði hröðu vatni og stórum hyljum með hægara rennsli.
Veiðisvæði Blöndu 4 nær frá stíflu og niður að til og með Litlaklifi, veiðistað númer 1. Svæðið frá stíflu að Rugludalshyl sem er númer 18 er ómerkt og lítt kannað en veiðimerkingar hefjast við Rugludalshyl.

Staðsetning: Norðvesturland. Blanda rennur í gegnum Blönduós, um 270 km frá Reykjavík.

Veiðitæki: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðitími: 20. júní - 20. sept.
Stangarfjöldi: 3
Veiðikort: Hægt að nálgast á www.agn.is
Veiðibók: Í veiðihúsinu á Eiðstöðum

Veiðihús: Eiðstaðir. Húsið er mjög rúmgott og skemmtilegt með stóru eldhúsi og nýjum húsgögnum í hverju rými. Svefnpláss er fyrir 6 manns og önnur aðstaða fyrir 8 manns. Gasgrill er á staðnum,

Umgegnisreglur: Veiðimenn mega koma í húsið 1 klst fyrir veiðitíma og skal húsið rýmt einni klst eftir að veiðitíma líkur. Munið að ræsta og hreinsa rusl.
Hvað þarf að taka með sér: Svefnpoka/sængur, baðhandklæði, tuskur og viskastykki.
Umsjónarmaður: Skrifstofa Lax-á ehf s: 557 6100.
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 557 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér

Veiðistaðir í Blöndu IV:
(samkvæmt bókinni Blanda og Svartá eftir Gísla Pálsson ofl. 2003)
18) Rugludalshylur: Þarna getur safnast saman nokkuð af silungi og þarna er afbragðs fluguveiðistaður.
17) Fálkahylur: Nettur hylur sem lætur lítið yfir sér.
16) Stykilhylur: Sérkennilegt berg rís upp úr hylnum að austanverðu og gerir hylinn dulúðugan.
15) Kirkjuhylur í Þramarlandi: Fallegur hylur í stórbrotnu landslagi.
Athugasemd
14) Hvammahylur að austan: Þetta er stór hylur og er tökustaður ofantil þar sem gróft grjót er í botninum.
13) Nefhylur: Lax hefur sést liggja við stein neðan við sjálfan hylinn.
12) Langhylur: Langhylur er djúpur hylur, með þrengingu í miðjunni. Nokkuð er um silung í þessum hyl.
11) Hvítaneshylur: Lax heldur sig upp með kanti sem er undir yfirborðinu upp hylinn að norðanverðu en silungurinn heldur heldur sig í pottinum að sunnanverðu. Hylurinn er skammt sunnan við túnið á Eldjárnstöðum.
10) Krókur: Hylur í krók neðan hvítaneshyls.
9) Þegjandi: Hylur við túnfótinn á Eldjárnstöðum sunnanverðan.
8) Stekkjarhamrahylur austan: Einn fallegasti hylurinn í Blöndu, fjölbreyttur og vandveiddur. Getur geymt mikið af fiski án þess að maður verði hans var.
7) Klifhylur: Farið er aðf veginum miðja leið niður til Eldjárnsstaða. Bratt klif er í skarði niður að ánni, en hægt að fara neðra og upp með ánni.
6) Bjarghylur: Áin rennur með bjari að austanverðu og myndar hyl.
5) Kálfhagahylur austan: Djúpur hylur upp með kletti.
4) Brík efti og neðri (Einbúi): Gjöfulir á lax og silung, nokkuð djúpir og vandveiddir.
3) Brot: Fiskur í göngu stoppar þarna, lítill hylur við austanmegin
2) Breiðan: Straumlítill hylur en stór, hentugt að nota flugu með léttsökkvandi línu.
1) Litlaklif: viðkvæmur staður og hentugur fyrir fluguveiði með flotlínu.
Bókanir og nánari upplýsingar:
Axel Óskarsso skrifstofa Lax-á, s: 557 6100 eða axelo@lax-a.is
Netsala smella hér
