Helstu fréttir
Veiðin í Hallá 2009 - Lokatalan náði 179 fiskum
Við vorum að heyra í honum Þresti sem er veiðivörður Lax-á í Hallá fyrir norðan. Þessi 2ja stanga laxveiðiperla endaði alls í 179 löxum, sem verður að segjast að sé frábær árangur miðað við undanfarinn ár, en eingöngu er veitt á 2 stangir í Hallá. Stærsti laxinn vóg 14 pund og best veiðin var í byrjun ágúst. Veiðin dreyfðist þokkalega jafnt á milli flugunnar og maðksins. Við erum byrjaðir að bóka inn í Hallá fyrir næsta tímabil, áhugasamir hafið samband við Axelo.. axelo@lax-a.is

