Helstu fréttir
10 bestu Veiðistaðir Víðidalsá 2009
Ragnar Gunnlaugsson veiðivörður úr Víðidalsá var að senda okkur mjög skemmtilega skýrslu úr Víðidalsá en þar kemur glöggt fram hversu margir laxar veiddust á hverjum veiðistað. En Víðidalsá toppaði þetta árið og komu alls 2019 laxar á land í sumar sem er eða mjög nálægt að vera besta ár frá upphafi í Víðidalsá.
Tíu bestu veiðistaðir Víðdalsár og Fitjár eru eftirfarandi
1. Laxapollur 215 laxar
2. Dalsárós 187 laxar
3. Harðeyrarstrengur 123 laxar
4. Faxi 114 laxar
5. G. Brú 101 lax
6. Silungabakki 90 Laxar
7. Dæli 86 laxar
8. Ármót 85 laxar
9. Síðukrókur 79 laxar
10. Tjarnarfljót 63 laxar
bestu kv stefan@lax-a.is
