Helstu fréttir
Héðan og þaðan
Þá erum við enn og aftur komin með vikulegar veiðitölur af nokkrum veiðisvæðum okkar.
Ytri Rangá hefur skilað rúmlega 3.300 löxum á land þetta sumarið og er að veiðast á öllum svæðum lúsugur fiskur.
Eystri Rangá er komin með rúmlega 1.600 laxa og er þar sama sagan og í Ytri, fiskur á öllum svæðum.
Blanda er að komast yfir 2.000 laxa múrinn í fyrsta skipti í rúmlega aldarfjórðung, við gerum ráð fyrir að allur ágústmánuður verði laus við yfirfallsdrauginn og líkur eru á að september sleppi líka.
Víðidalsáin er komi yfir 1.000 laxa og þar er allt fullt af fiski, í Fitjá veiddust m.a. um 40 laxar á einum degi.
Hallá við Skagaströnd er komin yfir 70 laxa og er þetta besta veiði á þessum tíma í rúman áratug.
Laugardalsá er annar hástökkvari hjá okkur, 379 laxar voru komnir á land á hádegi í gær og ekkert lát á veiðinni þar.
Hvannadalsá og Langadalsá eru báðar komnar yfir 150 laxa hvor, Hvannadalsá með 157 laxa en Langadalsá með 155 laxa.
Tungufljótið er komið með 441 lax og Tannastaðatangi kominn með 46 laxa.
Upplýsingar um lausar stangir og tilboð á þeim má finna á www.agn.is
