Helstu fréttir
Héðan og þaðan
Þá erum við komin með veiðitölur af nokkrum að veiðisvæðum okkar sem við teljum rétt að deila með veiðimönnum.
Langadalsá er komin með 138 laxa á land og síðasta holl landaði 21 laxi og var sá stærsti 18 pund!
Hvannadalsá gerir einum betur og er komin með 139 laxa á land og síðasta hol var með 18 laxa.
Tungufljótið er komið með 394 laxa og virðist vera að komast almennilega í gang.
Tannastaðatangi er kominn 36 laxa á land en þar hafa veiðimenn víst verið duglegir við að missa.
Vesturbakki Hólsár er komin með 310 á land og fara veiðimenn þar ekki varhluta af þessum öflugu laxagöngum í Ytri Rangá
Upplýsingar um lausar stangir og tilboð má finna á www.agn.is
