Helstu fréttir
Allt ennþá á fullu í Blöndu
Enn er nóg að gera í Blöndu, undanfarna daga hafa verið að koma u.þ.b. 50 laxar á dag af svæði 1 (allt á flugu) og er veiðin eitthvað að glæðast á svæði 2, þar eru að koma þetta 4 - 8 laxar á dag.
Við eigum lausar stangir á svæði 1 frá þriðjudegi til miðvikudags í næstu viku sem sjá má á www.agn.is og einig eigum við laust á báðum neðri svæðunum eftir miðja vikuna.
Svo minnum við á að hverfandi líkur eru á yfirfalli þetta árið og eigum við lausar stangir á öllum svæðum en úrvalið má sjá á www.agn.is
Myndin hér að neðan er af maríulaxinum hjá 6 ára dreng, 16 punda lax - tekin á svæði 2 í ágúst í fyrra.
