Helstu fréttir
Veiðtölur og tilboð
Þá er laxinn mættur fyrir alvöru og vaktirnar komnar í tveggja stafa tölur.
Við erum með tilboð í gangi í okkar helstu ár.
Í Blöndu veiddust tæplega 50 laxar á svæði 1 yfir helgina og eru þá komir rúmlega 120 laxar af svæðinu, en svæði 1 og 2 eru nú seld saman og gaman að segja frá því að síðustu 3 daga hafa farið ca 120 laxar í gegnum teljarann við Ennisflúðir.
Tilboð í Blöndu sv. 1 og 2: dagurinn á 48.800 kr. og veiðihús á tilboðsverði 12.800, allt agn leyfilegt.
8-10 júlí, 3 stangir lausar
10-12 júlí, 4 stangir lausar
12-15 júlí, 3 stangir lausar.
Nú eru að koma 30-40 laxar á dag og veiðin hefur verið að aukast með hverjum deginum enda stórstraumur þann 8 júlí og mikið . Bestu svæðin núna eru Rangárflúðir, Ægisíðufoss, Djúpós og Borg.
Tilboð í Ytri Rangá: dagurinn á 44.000 kr. og veiðihús á tilboðsverði 12.800.
10-12 júlí, 3 stangir lausar
12-15 júlí, 4 stangir lausar
Eystri Rangá byrjaði strax að gefa lax í enda júní og var orðið töluvert líf fyrstu dagana í júlí. Það er búið að vera mikill stígandi sl daga og má búast við að mikill hvellur gæti orðið næstu daga.
Tilboð í Eystri Rangá: dagurinn á 44.000 kr. og veiðihús á tilboðsverði 12.800.
10-12 júlí, 4 stangir lausar
12-15 júlí, 5 stangir lausar
Frekari upplýsingar er hægt að sjá inná www.agn.is og hjá spall@lax-a.is
