Helstu fréttir
Héðan og þaðan
Við heyrðum í Hafliða Hjartarsyni en hann var við veiðar á Tannastaðatanga í blíðunni í gær. Veiðin gekk nokkuð rólega enda enn heldur snemmt fyrir Tannastaðatangann. Þrátt fyrir það kom einn 5,5 kg lax á land og missti Hafliði annan nokkuð stærri við löndun. Töldu veiðimenn að þar hefði verið um að ræða 7,5 kg fisk. Báðir fiskarnir voru nýgengnir og greinilega á göngu en þeir tóku beint út af tanganum.
Alexander Dean var við veiðar í Brynjudalsá í gær og gekk lítið þrátt fyrir að fiskur væri í ánni. Sá Alexander þrjá fiska og einn þeirra ansi vænan og taldi hann nálægt 15 pundunum. Þrír laxar eru komnir á land úr ánni í sumar.
bestu kv
Stefán
