Helstu fréttir
Silungasvæði Víðidalsár fer vel af stað - Mun meira af fiski núna en undandfarin ár
Við fengum fréttir þess efnis í morgunn að það væri blússandi gangur af bleikju í Víðidalnum þessa daganna, meðalstærðin er um 2-3pund. Góðvinur okkar hér á skrifstofunni, hann Guðlaugur gamli úr Hveragerði hefur veitt á svæðinu í þónokkur ár og þegar ég náði af honum í morgunn þá var hann ásamt frúnni búinn að landa 40 vænum bleikjum, þrátt fyrir að hafa verið nánast inni í bíl allann gærdaginn vegna slagviðris. Mesta veiðin er við Borgareynna í austurkvíslinni en Guðlaugur sagði að vesturkvíslin fyrir neðan breiðuna væri með óheyrilegt magn af bleikju, hún væri bara svo treg í töku..Axelo axelo@lax-a.is
Þess ber að geta að við eigum örfáa daga eftir á þessu skemmtilega svæði og má nálgast þá inni á söluvef okkar www.lax-a.is
Bestu kveðjur
Axeló
557-6100
