Helstu fréttir
Ballið að byrja opnanir næstu daga ofl
Strax eftir helgi munu hver áin á fætur annari opna og er nú kominn víða Lax. Hér er smá upptalning hvaða ár eru búnar að opna og hverjar opna á næstu daga.
Blanda
Ballið að byrja
Fyrsta skotið Frá opnun frá 5 júní byrjaði í gærkvöldi en við heyrðum í veiðimanni í dag sem var búin að fá eina 5 stórlaxa á tvemur vöktum og var allveg í skýunum yfir árangrinum. Hann sagði að einnig hefði verið á bilinu 15-20 stórlaxar í spítalanum, en það segir okkur að sl sólahring hefur verið að hellast inn lax.
Eigum lausar stangir 20-23 júní og næst á stórstreyminu 8 júlí.
Einnig opna sv 2, sv 3 og sv 4 á laugardaginn og verður spennandi að sjá hvað kemur upp.
Ytri Rangá
Ytri Rangá opnar að morgni 23 júní ásamt vesturbakka hólsá og það er töluvert langt síðan fyrstu Laxarnir fóru í gegnum teljarann við Ægisíðufoss svo það varður gaman að sjá hversu margir koma á land á fyrsta dagi. En í Gær voru komnir 12 laxar í gegnum teljarann við Ægisíðufoss.
Eigum nokkra staka daga á tímabilinu 23 júní til 10 júlí..
Víðidalsá
Víðidalsá opnar á hád 24 júní og er Laxinn mættur, Stefán Kristjánsson Leiðsögumaður fór á stúfana í gærmorgun og fann allavega eina 2 góða stórlaxa ,giskuðum á 15 pund við kerið. En erfið skilyrði eru til þess að skyggna ánna þessa stundina vegna vatns.
Eigum næst laust í hollunum 30-3 júlí og 6-9 júlí.
Tungufljót
Tungufljót opnar 24 júní, og er mikil eftirvænting eftir þetta mikla laxaár í 2008, og vonumst við til þess að sjá stórlaxinn koma núna fyrstu dagana.
Eigum næst lausar stangir 26-28 júní og svo ekki fyrr en eftir 10 júlí.
Eystri Rangá
Eystri rangá kom hrikalega vel út sl 2 ár með ótrúlegum endurheimtum. Það verður mjög spennandi að sjá hvað kemur mikið af stórlaxi fyrstu dagana, en við eigum lausa daga frá 4 júlí -7 júlí á tilboði á www.agn.is sjálfur fór undiritaður að morgni 6 júlí 2008 og fékk eina 7 stórlaxa á bilinu 4 -7,5 kg.
Smærri Laxveiðiárnar private veiðihús.
Langadalsá opnar 21 júní og er nýja veiðihúsið allveg glæsilegt. Eigum lausar stangir 21-25 júní, 3-6 júlí,
Hvannadalsá opnar einnig 21 júní, gamla langadalsárhúsið fylgir núna Hvannadalsá. Eigum lausar stangir 30-1 júlí einn dag og síðan ekkert fyrr en 14 júlí.
Hallá á Skagaströnd opnar einnig 21 júní og eigum við lausar stangir 22-24 júní, 26-28 júní og 30-1 júlí þá fer framboðið minkandi..
Svartá í A Hún opnar 1 júlí og eigum við laust 3-6 júlí og 6-9 júlí á fínum kjörum.
Laugardalsá opnaði þann 15 júní og strax á fyrstu vakt var kominn 12 hængur.. glæsileg byrjun. Eigum lausar stangir 18-20 júní 28-1 júlí og 1-4 júlí.
Laxá ásum opnar 30 júní og eigum við næst laust hollið 15-17 júlí og síðan ekkert fyrr en í ágúst.
Hægt er að sjá upplýsingar á www.agn.is og hægt er að hafa samband við stefan@lax-a.is einnig er hægt að hringja á skrifstofu okkar í síma 557 6100
Bestu kv Stefán
