Helstu fréttir
Sjóbleikja á Grænlandi - Spennandi kostur í veiðiflórunni
Komdu að veiða Sjóbleikju á Grænlandi með Lax-á
Síðsumars bjóðum við stangaveiðimönnum uppá sjóbleikjuveiði í nágrenni Qaqartoq á Suður Grænlandi. Þetta er kræfur veiðiskapur, menn fara langar leiðir, jafnvel klukkustundum saman á hraðbátum, síðan taka tveir jafnfljótir við og enn hlaðast upp klukkustundirnar..

En á endanum er þetta allt þess virði og vel það, því að í fjarlægum eyðifjörðum og dölum renna yndislegar ár til sjávar. Þær eru til að heita nánast ósnortnar og þær eru gersamlega yfirfullar af stórri sjóbleikju! Þetta er aðeins spurning hvað þú vilt mikið því að veiðisvæðin eru svo mörg en það er styttra að sækja í sum en önnur. En alls staðar er fullt af fiski..

Bleikjan tekur vel, bæði flugu og spón og hún er nautsterk, enda væn en algeng stærð er 2 til 6 pund, en mun stærri bleikjur sjást alltaf í bland. Háværar sögusagnir þess efnis heyrast að besti veiðimaðurinn er sá sem að finnur fluguna sem bleikjan vill ekki taka..

Grænland er stórfenglegt land og náttúran þar lætur engan ósnortin. Þó að Grænland sé okkar nágranni og stutt á milli, þá er ásjóna landsins vægt til orða tekið ólík. Það gerir helst, að ríkjandi bergtegundir eru ekki gamla forna blágrýtið eins og á Vest- og Austfjörðum, og móberg í miðjunni, heldur ákveðnar tegundir djúpbergs eins og gabbró, granófýr og granít..
Fjöll úr djúpbergi eru tindóttari, skarpari og oft hærri en gömlu þéttu og reglulegu blágrýtirfjöllin sem við þekkjum. Á einum stað hér á landi hafa menn þó smjörþef af þessu, en það er í nágrenni Hafnar í Hornafirði þar sem Eystra og Vestara Horn setja svip sinn á nánasta umhverfið. Þetta gerir umhverfi Grænlands svo tröllslegt sem raun ber vitni. Þá er sjórinn ómengaður, grænn og blár og djúpur, menn sigla innan um ísjaka, hlíðar dalanna eru kjarri vaxnar og dalbotnar umvafðir eyrarrós og öðru blómskrúði. Sannlölluð paradís..

Jón Eyfjörð Friðriksson fór í fyrra. Hann sagði svo frá einum deginum “Ég var búinn að ganga í nokkrar klukkustundir og þurfti síðan að komast yfir hátt skarð á milli dala. Var orðinn ansi þreyttur þegar ég kom upp á top. Þar var þoka, en þegar ég var á leið niður hinum megin, kom ég niður úr þokunni og var allt baðað í sól..

Ég hrökk við þegar gríðarmikill hreintarfur rauk af stað rétt fyrir framan mig og var ekki fyrr búinn að ná jafnvægi eftir það, þegar þessi líka hrikalegi haförn lyfti sér af steini aðeins fáa metra frá mér og sveif vængjum þöndum, hring eftir hring þangað til hann var eins og lítill depill á himninum..

Eftir þetta sjónarspil hélt ég áfram niður hlíðina og þar liðaðist einhver fallegasta á sem ég hef séð. Ég veit ekki til að hún heiti neitt, en hún var pökkuð af stórri sjóbleikju. Torfur af fiski í öllum hyljum. Það má heita að það hafi verið fiskur á í hverju kasti, þvílíkar tökur og hvílík læti! Ég hef eiginlega aldrei lent í öðru eins”..

Veiðiferðirnar okkar eru fjölbreyttar og hægt er að fara í þær án þjónustu og með. Í án þjónustu pakkanum er boðið upp á svefnpokagistingu í Narsaq en þá sjá veiðimenn alveg um sig sjálfir frá a-ö fyrir utan veiðitíma. Ef menn vilja fulla þjónustu þá er gist á góðu hóteli með öllum nútíma þægindum, frábær kostur á Grænlandi. Ferðirnar standa yfirleitt í 5 daga..

Alvöru djúsí smörrebrauð er algengur kostur um borð fyrir veiðimenn ásamt góðum innlendum drykkjarföngum..
Allar frekari upplýsingar eru að fá á skrifstofu Lax-á.. góða ferð..
Axel Óskarsson axelo@lax-a.is
sími.. 557-6100
