Helstu fréttir
Flott veiði á fyrsta degi þrátt fyrir vonsku veður
Mikil snjókoma hefur hamlað samgöngum í hluta Bretlands í dag en ekki hefur snjóað jafn mikið í Suðausturhluta Englands í átján ár. Í Lundúnum liggja samgöngur að miklu leyti niðri og hefur þurft að loka hluta Heathrow flugvallar. Þúsundir skólabarna í Englandi og Wales glöddust yfir því í morgun að þurfa ekki að mæta í skólann heldur gátu þau farið út að leika sér í snjónum. Á einhverjum stöðum þurfti að dusta rykið af snjóruðningstækjum sem staðið höfðu óhreyfð í fimmtán ár. Á sjúkrahúsum í Lundúnum hefur verið hætt við allar minniháttar aðgerðir og í raun einungis veitt bráðaþjónusta á sumum sjúkrahúsum þar sem starfsfólk hefur ekki komist til vinnu. Vegna veðursins var ekkert dæmt í Old Bailey í dag og í einhverjum héraðsdómum var ákveðið að hafa lokað í dag. Í norðurhluta Wales létust tveir fjallaklifrarar á fjallinu Snowdon en þar hefur snjóað mikið undanfarna daga. Lýst var eftir mönnunum í gær og fundu björgunarsveitir lík þeirra í morgun. Flugi um Heathrow flugvöll var aflýst til klukkan 17 og eru þeir farþegar sem áttu flug fyrr í dag beðnir um að koma ekki á flugvöllinn."
Eftir að hafa lesið þessa grein á vef mbl í gærmorgun þá átti ég nú ekki von á góðum fréttum frá opnunardeginum í Dee í Skotlandi. Dagurinn gekk þó vonum framar og komu 23 laxar á land, þar á meðal voru 21 og 18 punda drekar. Dee er ein af fjóru stóru ánum í Skotlandi og eru laxveiðarnar gríðarlega mikilvægarar fyrir efnahag svæðisins. Veiðin hefur stóraukist síðustu árin og þakka heimamenn það fyrst og fremst bættri veiðimenningu.
