Helstu fréttir
Allt það nýjasta frá Rio Grande og Rio Gallegos

Síðasta vika í Rio Grande var mjög góð, mikið af fiski er genginn í ánna og veiðin er góð. Áin er temmileg, pínu lituð en í góðu hitastigi sem gerir kjöraðstæður til veiða. Það er búið að vera frekar kalt enda um haust veður að ræða. Myndirnar hér eru frá 30 punda ferlíki sem veiddist í vikunni. Núna framundan er frábært tímabil í ánni svo það verður gaman að fylgjast með..

Vikan var líka mjög góð í Rio Gallegos, Bella Vista en Þar komu 121 sjóbirtingur á land og var sá stærsti 9.2 kg en það er sjaldgæf sjón. Veiðin á þessari vertíð hefur verið framar vonum og þá aðallega í stærð á fiskum en meðalþyndgin er 4 pundum meiri en venjulega. Veðrið er frekar kalt, áin er að lækka og það er enn pínu litur í henni en þrátt fyrir það eru aðstæður í betri kantinum..

Það má varla sjá hvor er stærri, þetta er ekkert smá tröll..
Sjáið hvað sporðurinn er stór miðað við höndina..
Það er varla að fiskurinn passi í háfinn..
Allar mælingar eru gerðar eftir kúnstarinnar reglum..
Sjáiði þennan, hrikalegur bolti, vel gert..
Allar frekari upplýsingar má nálgast hér á skrifstaofunni hjá okkur..
Axel Óskarsson axelo@lax-a.is símanr.. 557 - 6100
