Helstu fréttir
Vorveiðin í Dee að fara af stað - Við munum fylgjumst vel með
Það er talsverður snjór í fjöllunum eftir veturinn, og spáð snjókomu framundan, allavega eitthvað fram í Febrúar samkvæmt langtímaspánni. Einnig er von á góðum straumskilyrðum í næstu viku sem ætti að skila góðri göngu í ánna. Hitastigið í dag í ánni er ekki nema 2°c og því líklegt að svæðin fyrir neðan Banchory muni skila góðri veiði. Á síðasta tímabili var fínasta veiði á þessum tíma, einhverjir töldu hana með þeim betri í mörg ár, enda var mikið um 2ja og 3ja ára laxagöngur..
Ekki var óalgengt að 5-7 fiskar á dag færu yfir 20 pundin en það var einmitt í Febrúar í fyrra sem stærsti fiskur 08 kom á land 38 pund, veiddur af heimamanninum Nick Craigs. Ef ég ætti að spá í græjur sem menn nota svona fyrstu vikuna, þá er það intermediate línur, sökkendar og stórar þykkar flugur og allt veitt á tvíhendu. Vinsælar flugur eru t.d. Tosh, Cascade, Willie Gunn og Monkey. En þær eru flestar hnýttar sem túpur. Ég mun flytja ykkur nýjustu fréttir úr opnun um leið og þær berast.. Axeló, axelo@lax-a.is
