Helstu fréttir

3

Vatnasvæði vikunar á www.agn.is er Blanda sv1 og víðidalsá silungasvæði

28.1.2009

Svæði I í Blöndu og silungasvæði Víðidalsár eru veiðisvæði vikunnar þessa vikuna á www.agn.is Í boði eru fyrstu dagarnir í júní á fínu verði. Þær eru ekki margar árnar sem státa af betra stórlaxahlutfalli en Blanda og oftar en ekki stendur stærsti hluti veiðinnar saman af tveggja ára fiski á þessum tíma sumarsins.

Eins og sjá má á fréttum hér að neðan frá því í byrjun sumars þá byrjaði veiðin vel í Blöndu og vonandi að svo verði einnig á komandi sumri.

Athugið að gistiskylda er við Blöndu en gisting og fæði er ekki innifalið í verði.

Áhugasamir geta skoðað laus leyfi í Blöndu sv 1 og á silungasvæði Víðidalsár á www.agn.is

 


Laxinn mættur í Blöndu
Hann er mættur laxinn í Blöndu, Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson leiðsögumaður á Blönduósi fór á stúfana í morgun og kíkti á helstu staðina á sv 1 í Blöndu. Núna þessa stundina liggur einn ca 10 punda í Damminum sunnanverðum neðarlega á grynningunum, sem sagt á besta tökustað. Einnig lá einn lax í Holunni fyrir ofan Dammin að sunnanverðu ca 8 pund. Það er efritt að skyggna Breiðuna núna en það er töluvert vatn svo það eru engar fréttir frá henni.. Blanda opnar 5. júní,  aðeins eftir örfáa daga, við eigum lausar stangir í hollunum 7-9 júní, 9-11 júní og 11-13 júní á góðu verði.

08.06.2008
14 laxar í opnunarholli
Opnunarhollið í Blöndu endaði í 14 löxum. Mikil ferð var á laxinum í Blöndu og voru sex laxar gengnir upp laxastigann í gærkvöldi. Einnig lágu fimm til viðbótar á Spítalanum, en Spítalinn er staður rétt neðan laxastiga þar sem allar veiðar eru bannaðar. Laxinn liggur þar gjarnan stutta stund áður en hann leggur í stigann.  Vatnið í Blöndu hefur minnkað talsvert síðasta sólarhringinn og gönguskilyrðin því orðin betri að sögn Stefáns Sigurðssonar, en hann hafði gert fína veiði í opnunarhollinu.




Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar