Helstu fréttir
Vatnasvæði Lýsu komið í vefsölu
Vatnasvæði Lýsu er komið í vefsöluna. Lýsa er staðsett á einum fegursta stað landsins, undir Snæfellsjökli. Vatnasvæðið er ákaflega fallegt og friðsælt. Veitt er í fjórum vötnum og ám á milli þeirra. Lýsa er eitt af fáum vatnasvæðum á Íslandi þar sem allar tegundir íslenskra ferskvatnfiska veiðast, sjóbleikja, vatnableikja , urriði , sjóbirtingur og lax.
Á fyrra tímabilinu veiðist urriði og bleikja og á hinu síðara lax er einnig laxavon. Það er mikill fiskur í vötnunum en veiðin er misjöfn.
Verð veiðileyfa lækkar mjög mikið milli ára. Áhugasamir geta skoðað nánar á www.agn.is
