Helstu fréttir
Nýr starfsmaður á skrifstofu Lax-á
Starfsmaðurinn er Benedikt Ragnarsson sem átti veiðibúðina Útivist og veiði í Síðumúla 11. Hann var innkaupastjóri í Ellingsen í 2 ár en er nú komin til starfa hjá Lax-á.
Hér ætlar hann að sjá um dagsferðir ýmiskonar fyrir viðskiptavini sem hafa áhuga á að fara í styttri ferðir. Á boðstólnum verða ferðir í Lax, silung og sjóbyrting en að auki bjóðum við uppá ferðir á jökul, hestaferðir, golf, sjóstöng, strandveiði, dorgveiði svo eitthvað sé nefnt. Áhugasamir bæði þeir sem eru að bjóða ferðir en ekki síst þeir sem hafa áhuga á að fara í styttri ferðir hafi samband við Benna á e-mail br@lax-a.is
