Helstu fréttir
Afrakstur veiðiferðar til styrktar Fjölskylduhjálp
Ástand laxsins í ánni var kannað í leiðinni og var það mjög gott og nokkuð stór hluti aflans var nýgengin fiskur. Allur aflinn var sendur til Eðalfisks sem flakaði og úrbeinaði nýja fiskinn en reykti hinn. Alls veiddust á annað hundrað laxar. Þegar laxinn var afhentur í lok síðustu viku tók Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálp við honum með miklu þakklæti..

Ásgerður tjáði okkur það að eftir alla umræðuna sem varð þegar veiðiferðin var farin hafi margir sett sig í samband vegna umtalsins og viljað leggja sitt af mörkum í þetta góða málefni. Það eru góðar fréttir í þessu árferði að heyra að fólk sé að vakna til samkenndar og hjálpi þeim sem þurfa að leita sér aðstoðar þessa dagana. Axel Óskarsson afhenti laxinn fyrir hönd Lax-Á ehf og er það gleðiefni að geta glatt fjölskyldur um bæ allan í svona árferði. Við viljum einnig nota tækifærið og hvetja sem flesta sem geta stutt við Fjölskylduhjálp að einhverju leiti að snúa sér til þeirra, eitt er víst að öll hjálp er vel þeginn. Við viljum þakka öllum sem að þessu góða framtaki stóðu.. axelo@lax-a.is
