Helstu fréttir
Frábær vorveiði á góðu verði
Það er skemmtilegt að fara í gegnum veiðiskýrslurnar úr Ytri Rangá sem Matthías veiðivörður ritaði upp, þar kemur glöggt fram hver veiðin var per dag í sumar og langar mig að sýna mönnum hversu góð veiðin var strax í byrjun sumars með veiðileyfum sem kosta frekar lítið.
24 júní 30 júní 28 laxar. Verðin á veiðileyfunum var 9900 kr - 12.800 kr
1-7 júlí 92 Laxar. Verðin á veiðileyfunum var 16.800 kr - 25.800 kr
8-15 júlí 371 laxar. Verðin á veiðileyfunum 37.800 kr - 65.600 kr
Verðin fyrir 2009 munu vera á svipuðu róli svo ég mæli með að menn skoði þessa daga fyrir 2009.
frekari upplýsingar gefur stefan@lax-a.is
