Helstu fréttir

axelo_saudnaut_4

Sportveiðiblaðið komið út - Aldrei flottara

14.11.2008

Einnig er komið inn á ferð sem félagarnir Jón Gnarr og Pétur Jóhann úr Dagvaktinni fóru í, áhugavert viðtal við Ástþór Jóhannson, leigutaka Straumfjarðarár og Mýrarakvíslar, en hann kemur með eitt það skemmtilegasta comment sem ég hef um ævina heyrt varðandi maðkveiði.."Hver nennir svo sem að tala um maðka heilan vetur". Skemmtilegri veiðiferð í Staðarhólsá og Hvolsá þar sem hvorki fleiri né færri en 6 Maríulaxar voru dregnir á land er gerð góð skil svo eitthvað sé nefnt.

En það er margt fleira en bara stangveiði í sportveiðiblaðinu, s.s. Íslenskir veiðimenn á skotveiðum erlendis, er þar farið til Svíþjóðar á Elgsveiðar og svo eftirminnileg ferð sem undirritaður fór í til Grænlands, en þar var verið að skjóta Sauðnaut og Hreindýr, veiða bleikju og þorsk, góð kynning á ferð sem þú færð hér hjá okkur í Lax-á.

Sportveiðiblaðið er góð viðbót í annars fátæklega flóru veiðitímarita og mættu fleiri taka þá Gunnar og félaga til fyrirmyndar..áfram Gunnar. Þess má svo geta að Sportveiðiblaðið fæst í öllum helstu stórmörkuðum landsins, sem og á bensín afgreiðslustöðvum og sjoppum og kostar ekki nema 899kr.. axelo@lax-a.is

Kveðja

Axel Óskarsson

axelo@lax-a.is

s:557-6100



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar