Helstu fréttir
Svona var dagurinn - Veitum þeim hjálparstöng
Veðrið var ekkert til að hrópa húrra fyrir, þungskýjað, hífandi rok og ausandi rigning. En um leið og við settum saman stangirnr þá stytti upp og allan daginn var bara fínasta veður, flott veiðiveður, nema hvað að vindurinn var allan daginn beint upp í andlitið á manni..
Við skiptum hópnum niður í 4 grúppur og héldum til veiða, það var fiskur að taka alstaðar þar sem við fórum, síst þó á Flúðunum, en einn og einn gaf sig þegar maður tók rennsli á þær..
Mesta veiðin var niðri á klöpp og í víkinni þar fyrir neðan og oft var það svo að við vorum allir með hann á í einu, svakalegt fjör. En fiskurinn virtist taka grannt og hann lá djúpt þannig að erfitt gat reynst að halda þeim á, samt veiddum við á annað hundrað laxa sem verður að teljast stórgott miðað við árstíma..

Fiskurinn var blandaður, þ.e.a.s. sumt af aflanum var legið, annað kútlegið en meirihlutinn var bjartur fiskur, meira segja svo að 6 fiskar voru lúsugir. Aflinn var myndaður í lok dags, skellt á kerru og brunað með aflann í Reykás áður en allir héldu heim..
Við viljum enn á ný koma þökkum til allra sem tóku þátt í verkefninu með okkur en þeir eru..
Veiðifélag Ytri Rangá
Lax-á ehf
Eðalfiskur
Fiskistofa
Veiðimálastofnun
Bestu kveðjur
Axeló og Kalli Lú
