Helstu fréttir
Veiðin í gær í Ytri Rangá - Á annað hundrað laxa á land
(Á myndinni hér til hliðar má sjá veiðimenn með aflann, Tómas, Rúnar, Daníel, Axeló og Hilmar)
Hinsvegar þegar líða fór á daginn þá fór Klöppin að gera vart við sig og ætla má að þar sé álíka mikill lax og mun veiðast næstu 2-3 ár í Norðurá í Borgarfirði.! Ótrúlegt magn af laxi, sem var misjafnlega vel haldinn, sumir nýjir, aðrir legnir. Yfirskrift þessara veiða var góðgerðarmál og mun allur aflinn verða verkaður, síðan pakkað og afhent Fjölskyldu hjálp í næstu viku..
Einnig var það markmiðið að stunda tilraunaveiði í ánni og fengust miklar og góðar upplýsingar sem vonandi Veiðimálastofnun og Fiskistofa koma til með að nýta, Laxa stofninum til góða. Það er verið að vinna myndirnar úr ferðinni og mun ég því birta þær hér á morgun ásamt góðri frásögn..
Mig Langar til að koma á framfæri þökkum til allra þeirra veiðimanna sem tóku sér frí frá vinnu til að veita þessu verkefni lið. Einnig vil ég þakka sérstaklega Veiðifélagi Ytri Rangá, en þar eru sannkalliðr heiðursmenn á ferð og tóku þeir þessu vel frá fyrsta símtali. Starfsfólk Fiskistofu og Veiðimálastofnun eiga einnig þakir skilið fyrir leyfisveitinguna og Eðalfiskur fyrir verkunina. Árni Baldurs og Valgerður hér hjá Lax-á, Takk fyrir kærlega, frábært framtak hjá ykkur, en þau standa straum af öllum kostnaði við fiskinn..
Vonandi verður þetta árlegur viðburður héðan í frá því þetta er aldeilis verðugt verkefni til styrktar góðu málefni..
Bestu Kveðjur
Axeló
