Helstu fréttir
Lax-á veitir hjálparhönd í Kreppunni - Gefur Fjölskylduhjálp fisk úr Ytri Rangá
Fengist hefur leyfi hjá Veiðimálastofnun sem og Fiskistofu til að fara í þetta verkefni. Þarna verða valinkunnir veiðimenn á ferðinni og er markmiðið að ná sem flestum fiskum á land og styrkja gott málefni. Lax-á mun standa straum af kostnaði með það að láta reykja og grafa allan aflann, Veiðifélag Ytri Rangár veitir leyfi til veiðanna með sérleyfi frá Vmst. og Fiskistofu. Það er okkar von að ná sem mestu á land og þar af leiðandi láta eitthvað gott af sér leiða í þeirri erfiðu stöðu sem svo margir eru í - í dag. Verður allur afli notaður til verkefnisins og metinn eftir kúnstarinnar reglum hvort eigi að fara í reyk, graf nú eða bara beint í soðið en mikið er af fiski ennþá í ánni eins og alþjóð veit þrátt fyrir þrusuveiði í sumar. Einnig munum við rannsaka fiskinn vel í samráði við opinberu stofnanirnar taldar hér að neðan, en vonandi má lesa margt úr þessari veiði s.s. ástand hrygningarfisks, fjölda nýlegra genginna laxa og fl. Kalli Lú og Axeló munu veita verkefninu ábyrgð og fylgjast með að allt sé eftir kúnstarinnar reglum. Sérstaklega viljum við þakka aðilum sem koma að verkefni þessu en þeir eru eftirfarandi..
Lax-á ehf
Veiðifélag Ytri Rangá
Veiðimálastofnun
Fiskistofa
Eðalfiskur
Við verðum með myndir, aflatölur og framvindu mála í þessu verkefni strax á fimmtudags morgun, fylgist því vel með.. axelo@lax-a.is
Bestu kveðjur
Axeló
