Helstu fréttir
Nýgengin maríu lax í gær í Ytri Rangá – Tóku 24 laxa á eina stöng í gær
Þeir voru að fá fiska frá 4-12 pund, marga nýgengna og fallega, einn af þessum fiskum, væntanlega sá fyrsti var Maríulax og óskum við yngri bróðurnum til hamingju með það. Þær hrygnur sem þeir fengu voru bústnar af hrogna pokum, en eins og þið vitið kæru veiðimenn þá er það hið mesta lostæti með smá sítrónu og salti..
Undanfarna daga hafa verið að veiðast þetta frá 70 – 110stk á dag, sem er bara nokkuð gott, og svona til að setja það í samhengi við aðrar ár hjá samkeppnis aðilunum, miðað við að það sé octóber núna þá tæki ekki nema um 10 daga að veiða jafn mikið og í Leirvogsá á 90 dögum, 33 daga að veiða upp í lokatölunu í Norðurá í Borgarfirði og ekki nema 4 daga í Stóru Laxá í Hreppum.. þarf eitthvað að ræða það hvar versla eigi sér veiðileyfi á næsta ári..? axelo@lax-a.is
