Helstu fréttir
Kuldinn hefur áhrif á veiðina
Það er ennþá frábær gangur í Ytri Rangá þessa dagana en kuldin hefur áhrif á menn og fiska. Td á þriðjudag komu um 120 laxar á land þann daginn. á miðvikudag um 80 laxar og í gær sem var allveg ferlega kaldur gaf aðeins 37 laxa. Það er allveg ljóst að kuldin hefur áhrif en það snjóaði í nótt og var frekar hvítt um að lítast.
Það er spáð hlýnandi næstu daga svo menn ættu ekki að örvænta.
Bestu kv Stefán
