Helstu fréttir
Grænland er málið þegar halda á til skotveiða
Við lentum á Narsassauq flugvellinum og fórum þaðan til Qaqortog með báti en það er um 2 klst ferð. Við gistum á hótelinu þar en það er glæsilegt í alla staði með aldeilis frábæran bar á jarðhæðinni sem minnir mann á hafnarkránna eins og hún var og hét áður en Geiri fór á Goldfinger..! Við áttum 4 dýr til að skjóta, veðrið var gott og allar aðstæður til fyrirmyndar. Eftir góðan dag var siglt heim með góðan feng og stefnan tekin á barinn á ný. Ég mun skrifa ítarlegri ferðasögu hér á næstu dögum fyrir ykkur kæru veiðimenn til að veita ykkur innsýn til veiða á Grænlandi, en við munum einmitt bjóða einstakar ferðir á hreindýr og sauðnaut næsta sumar og skora ég því á ykkur að fylgjast vel með á næstunni..
Að sjálfsögðu hér á Lax-á síðunni.. Hvar annarsstaðar..?
