Helstu fréttir
Lax-á hefur ávallt verið tilbúið að leggja fram greiðslu til neta upptökunnar í Hvítá , athugasemd við skrif Eiríks St. Eiríkssonar á SVFR
Enn og aftur ryðst SVFR fram nú með Eírik í farabroddi í að ljúga upp á Lax-á að við neitum að borga okkar hlut í netaupptöku í Hvítá í Borgarfirði. Í enn eitt skiptið skal það staðfest að alveg frá upphafi hefur Lax-á verið tilbúið með greiðsluna (fjöldi tölvupósta til því til staðfestingar) EN er neitað um gögn í bókhald félagsins til skýringar og stuðnings slíkri geiðslu ..... er þetta flókið? Hvað er málið? Lax-a greiðir strax og fær afrit af gögnunum, enda værum við þá aðili að netaupptökunum ef við borgum stóran hluta af kökunni. Eiríkur er eins og áður afspyrnu dónalegur þegar hann eys skítnum yfir annað fólk. Þetta skrifar hann um okkur "og ég þarf ekki að hafa mörg orð um sníkjulífið sem Lax-á lifir á vegna hins sama vegna Tungufljóts. Það hefur ítrekað verið haft samband við báða aðila en e.t.v. er best að SVFR hætti þegar í haust uppkaupum á netum sem gagnast þessu svæði" Að þurfa að lesa þessa lygi frá þessu svokallaða Stangaveiðifélagi "Reykjavíkur" er óþolandi. Sjáið sóma ykkar í að taka við peningunum og hættið að rógbera vinnandi fólk. Varðandi þessa gerviforúthlutun ykkar hjá SVFR, þá félagsmenn af hverju spyrjið þið ekki stjórnina hverjum var úthlutað þessum leyfum síðustu ár. Þá komist þið að því að þeim tíma sem þið félagsmenn vörðuð til að sækja um leyfi í forúthlutun var varið til einskis en þið fáið samt að halda félaginu uppi með félagsgjöldunum sem bera uppi taprekstur á hverju ári en forúthlutunarleyfin fóru flest bara 3 skref yfir ganginn nánast á einu bretti til Lax ehf. Árni arnibald@lax-a.is
