Helstu fréttir
Miðsvæðið er málið
Þeir veiðimenn sem eru að leita sér að ódýrum hausttúr þurfa ekki að leita lengur, Miðsvæðið í Tungufljóti er málið. Ég var að heyra í einum sem fjárfesti í tveimur stöngum og hann varð ekki fyrir vonbrigðum, hann var komin með fjóra fyrir klukkan 10:00, og það var víst hálfgerður hákarl að stökkva fyrir framan nefið á honum. Hann neitar að hreyfa sig fyrr en hann er búin að setja í hann.
Leyfin á miðsvæðið kosta aðeins 9.800 kr. kannski bestu kaupin á markaðinum?
kv, Arnar
