Helstu fréttir
1600 laxar upp fyrir Faxa!!!
Gengið í Tungufljóti þetta sumarið hefur verið vonum framar en fljótið hefur nú skilað rúmlega 1300 löxum á land sem er náttúrulega alveg frábær veiði. Reyndar grunaði flesta að veiðin ætti eftir að vera mögnuð í Tungufljótinu þetta sumarið en það sem hefur komið mest á óvart er hversu öflugt svæðið ofan Faxa hefur verið. Nú hafa 1600 laxar gengið upp laxastigann við Faxa en lítið álag hefur verið á svæðinu í sumar þrátt fyrir að verði veiðileyfa sé stillt í hóf. Margir sem hafa farið hafa þó gert ágætis veiði og sérstaklega hafa síðustu dagar verið góðir en gærdagurinn gaf til að mynda hvorki fleiri né færri en 26 laxa ofan Faxa, ekki slæmt það.
kv, Arnar
Arnar@lax-a.is
