Helstu fréttir
Ytri Rangá að bæta Íslandsmetið í dag!!!!!
Að kveldi 27 ágúst var Ytri Rangá komin í 7250 laxa, það vantar sem sagt bara 247 laxa upp á að metið síðan í fyrra falli. Það var eins og margir muna 7497 laxar og á Eystri Rangá metið. Það þarf í sjálfu sér lítið að tala um hversu ótrúleg veiði þetta er sérstaklega í ljósi þess að bara fluga er leyfði í Ytri og aflahrinur haustsins eru eftir, það má nota allt leyfilegt Agn á hádegi á morgun og má þá gera ráð fyrir að aflatölur þjóti upp, hvar endar þetta!!! Ég taldi mig nokkuð góðan að spá 10.000 löxum um daginn en nú segja mér menn sem til þekkja að hún eigi sennilega léttilega að geta farið yfir 11.000 laxa og jafnvel ná upp í 12.000 laxa, það er alveg hreint gersamlega óhemju ótrúlegt!!!!!
kv, Arnar
