Helstu fréttir
Ánægja með Tungufljótið
Það hringja reglulega inn veiðimenn sem voru að koma úr Tungufljóti í fyrsta sinn og þeir eru himinlifandi. Það er svo góður gangur þarna fyrir austan núna að Tungufljótið hefur efni á að auðga flest öll svæðin á leiðinni, t.d. Langaholt, Tannastaðartanga ofl. þar veiðist ótrúlega vel og telja menn að þarna sé á ferð Tungufljóts lax.
Ég var að heyra í einum sem fór með marga óvana veiðimenn með sér og það fengu allir fisk, þrír maríulaxar komu á land og allir voru í raun í bullandi action, þeir náðu 47 löxum á land og misstu annað eins og þetta á tveimur dögum þar sem að þrjár stangir af fjórum voru algerlega óvanar. Svona gerast ævintýrin, það er ljóst að það verða engir veiðimenn fyrir vonbrigðum sem veiða í Tungufljóti, enda er leyfin nánast uppseld þetta árið !!!!
kv, Arnar
