Helstu fréttir
Góður dagur í Heiði/Bjallalæk
Sæll Arnar kominn heim þreyttur enda mikil yfirferð á manni.Ég náði 2 löxum einum á fyrri vakt í morgun og hinn seinni vaktina í dag þeas báðir þann 5 ágúst og var annar 8 punda hrygna nokkuð gömul í ánni og síðan 10 punda hængur ekki lúsugur en nokkuð nýr.Ég tók þá á ómerktum stað töluvert fyrir neðan Krók sem merktur er þarna annan á Keilu snældu Orange Gula og svarta og hinn á Alli´s Shrimp ½” túpu
Rúnar náði í 3 laxa allir úr sama mótinu 8 punda 2 hrygnur og einn hængur hann hafði einn úr Heiðarvaðinu og tvo úr króknum.Voru þetta fyrstu laxarnir hans og það sem betra er allir teknir á flugu og það heimagerða brass túpur.En hann fékk þann fyrsta á heiðarvaðinu 4 ágúst
Gunnar hafði 2 á fluguna á heiðarvaði og sleppti þeim og tók svo seinnipartinn 3 á breiðuni fyrir neðan ármótahyl á maðkin og voru það týpískir smálaxar 4 til 6 pund bjatir en ólúsugir en ég sá nokkra stökkva og voru þeir á mikilli ferð fyrr um daginn niðrí krók og óðu upp með austurbakkanum og hafa svo sest á breiðuna þarna.
Það var gaman að sjá að þegar ég fékk 10 punda laxinn þá sleppti annar fluguni og sá ég að þeir voru 2 að berjast um hana og rígnelgdi hann fluguna en þetta er djúpur og hægur staður og liggur slatti af laxi þar og er held ég komin til að vera sem legustaður hjá þeim allavega var ekkert fararsnið á þeim þrátt fyrir að ég var duglegur að berja með tvíhenduni á svæðinu.
Allavega er Heiði/Bjallalækur svæði sem er komið á listan hjá mér sem áhugavert svæði og er ég viss um að það er komið til að vera sem síðsumarssvæði hjá ykkur og verður gaman að sjá hvað verður með framhaldið fram á haustið.
Kær Veiðikv
Guðmundur
