Helstu fréttir
19 laxar komnir á land í Víðidalsá og rúmlega 20 í Miðfjarðará
Það voru 19 laxar komnir á land í gær í Víðidalsá. Þetta er mjög flott veiði í opnunarholli, þetta eru í flestum tilfellum stórlaxar. Það virðist vera lang lífllegast þegar það dregur fyrir sól.
Það er svipaður gangur í Miðfjarðará og þar hafa veiðst rúmlega 20 laxar lang flestir tveggja ára laxar og í frábærum holdum.
Nú fer að detta inn í stórstreymi og verður spennandi að sjá hvort að smálaxinn hellist inn á þessu stórstreymi eða hvort hann láti bíða eftir sér
kv, Arnar
