Helstu fréttir
Laugardalsá dottin í gírinn
Við vorum að fá tölur frá veiðimanni sem var í Laugardalsá núna seinustu daga, hann var mjög ánægður, þeir náðu slatta af vænum urriðum og bleikjum og náðu meira að segja einum 5 punda sjóbirtingi.
Þeir voru reyndar á laxveiðum og náðu tveimur fallegum löxum 10 og 6 pund á Micro túpur og misstu 6 á hitch.
Laxarnir komu úr Hagakotsfossi og Grímhóli, þeir sögðu jafnframt að talsvert væri af laxi á mörgum stöðum í ánni.
kv, Arnar
Kveðja
