Helstu fréttir
Eystri Rangá
Veiðimenn hafa ekki farið varhluta af fréttum af veiddum löxum í Eystri Rangá núna í lok júní, þrátt fyrir að veiðin byrji ekki formlega fyrr en 1. júlí. Um er að ræða tilraunaveiði þar sem leiðsögumenn á vegum veiðifélagsins og Lax-á eru að athuga stöðuna, einnig er verið að ná í nokkra laxa í klak.
Frétti sem hafa borist frá þessum tilraunaveiðum hafa verið ákaflega jákvæðar, það hafa verið að veiðast stórlaxar víðsvegar um ána og hafa þeir verið bæði lúsugir og án lúsar. Þetta hafa verið mest laxar í kringum 10-14 pund.
Það virðist sem að apríl laxinn í Eystri hafa varla verið tilviljun, laxinn er að ganga ótúrlega snemma í ána, sem yfirleitt hefur verið talinn vera frekar sein til.
kv, Arnar
