Helstu fréttir
ATH!!! Tvær stangir lausar í hollinum um helgina í Blöndu
Ennþá eru tvær stangir lausar um helgina í Blöndu sv. 1. Það er svo stutt í þetta að við bjóðum stangirnar á 50% afslætti. Endilega hafið samband við skrifstofuna til þess að fá nánari upplýsingar.
Um er að ræða veiði frá 16:00 á laugardaginn til 13:00 á mánudaginn.
Við eigum líka til eina stöng í hollinu á eftir 11-13 júní.
Þeir sem eru á veiðum núna í Blöndu eru búnir að ná 11 löxum sem við höfum heyrt af og það eru víst nýir fiskar að renna sér inn.
kv, Arnar
arnar@lax-a.is
