Helstu fréttir
Líflegt í Blöndu
Samkvæmt síðustu fréttur þá voru enn 5 laxar komnir á land í Blöndu, 4 af löxunum komu í land í Damminum að sunnan og einn í damminum á norðan. Þetta eru allt tveggja ára laxar, enda er sjaldgjæft að menn setji í smálax fyrstu vikurnar í Blöndu. Við höfum ekki heyrt af aflabrögðum af Breiðunni ennþá en heyrðum samt útundan okkur að það hefði sést eitthvað líf þar. Það koma myndir í hádeginu og nánari fréttir.
Vert er að minnast á að við eigum ennþá tvær stangir 7.-9. júní í Blöndu, ef þessi gangur heldur áfram þá má gera ráð fyrir að þær verði fljótar að fara.
kv, Arnar
