Helstu fréttir
Ytri Rangá 6. júlí
Besta veður til veiða skýað og létt rigning hluta dags en ágætlega hlítt.
Við hófum veiðar á svæði eitt, sá sem veiddi á móti mér byrjaði á Borginni á meðan ég fór upp í Straumey. Ég varð ekki var við fisk þar en veiðifélaginn var búinn að setja í tvo fiska og missa báða þegar ég kom niðurúr í lok vaktarinn á svæði 1. Töluvert var af fiski á Borginn og var hann að sýna sig alla leið niður undir tangann. Næstu tvær vaktir vorum við á svæðum 8 og 6 en urðum ekki varir við fisk enda sýndi teljarinn 9 fiska ef ég man rétt sem af þremur hafði verið landað. Það kom síðar í ljós að teljarinn var ekki í lagi. Við lukum deginum í Ægissíðufossi og greinilegt að það var fiskur víða á svæðinu. Ég landaði einum 4.5 pund á breiðunni og sá sem veiddi á móti mér misti einn. Daginn eftir byrjaði ég á svæði 2, Djúpósnum. Ég byrjaði að fara hratt yfir með Sunray, en varð ekki var við heyfingu. Skipt var yfir í hægsökkvandi línu með 11/2" Gyðu undir (sérstaklega veiðileg fluga) og það var tekið með offorsi, hreinlega stökk á fluguna. Ég fann um leið að þessi var yfir meðalviktinni og eftir frábæra viðureign var tæplega 10 punda laxi landað. Frábær tími í Ytri Rangá í upphafi veiðisumarsins.
