Helstu fréttir
Söluskráin kynnt með pomp og prakt á Laugardaginn
Helgin í Ellingsen verður með sannkölluðum veiðibrag og því ekki úr vegi að skella sér og kíkja á það sem verður í boði. Allt hefst þetta á föstudaginn þar sem meðlimir hljómsveitarinnar Vöðlubandið munu leika á létta strengi. Hinn alkunni Fluguhnýtari Siggi Páls mætir á staðinn og veitir vönum sem og öðrum góðlegan fróðleik um hnýtingar. Einnig munu svo starfsmenn Ellingsen, þeir Þórður og Grétar vappa um búðina og veita góðfúsleg ráð um vörur sínar sem verða á tilboðsverði alla helgina. Það er því um að gera fyrir alla veiðiunnendur að skella sér á veiðidaga í Ellingsen og taka helgina með pompi og prakt...
kveðja
Axeló axelo@lax-a.is
