Helstu fréttir
Argentína - Nýtt á nálinni 2009
Á næstu dögum mun ég kynna það nýjasta í veiði suður í Argentínu sem við hér hjá Lax-á ætlum að bjóða uppá. Talsverðar nýjungar verða á boðstólum sem eiga eftir að seðja vetrar-veiði hungrið hjá mörgum veiðimanninum. Eitt það helsta verður þó að við ætlum að bjóða uppá verð sem ekki hafa verið að sjást áður og því gefa fleiri mönnum færi á að njóta sín þar. Ekki er þó um verðlækkanir að ræða á því sem fyrir er heldur erum við að auka út kvíarnar og fá til okkar fleiri veiðisvæði, sem bjóða uppá frábæra veiðimöguleika jafnt bæði fyrir stangveiðimenn/konur sem og skotveiðimenn/konur...fylgist því vel með á næstu dögum því þetta verður allt nýtt á nálinni og afar áhugavert..
Frekari upplýsingar gefur axelo@lax-a.is S:557-6100
